settings icon
share icon
Spurning

Hver er Heilagur andi?

Svar


Það eru margar ranghugmyndir um eigind Heilags anda. Sumir sjá Heilagan anda sem töfrum slunginn kraft. Aðrir skilja Heilagan anda sem ópersónulegt afl sem Guð gerir tiltækt fylgjendum Krists. Hvað segir Biblían um eigind Heilags anda? Einfaldlega sagt – Biblían segir að Heilagur andi sé Guð. Biblían segir okkur einnig að Heilagur andi sé persóna, vera með huga, tilfinningar og vilja. Sú staðreynd að Heilagur andi sé Guð er augljós í mörgum ritum, þ.m.t. Post. 5:3-4. Í þessu versi spyr Pétur Ananías, hvers vegna hann hafði logið að Heilögum anda, og segir honum „að hann hafi ekki logið að mönnum heldur Guði.”

Þetta er skýr yfirlýsing um að það að ljúga að Heilögum anda sé að ljúga að Guði. Við vitum einnig að Heilagur andi er Guð af því að hann hefur eiginleika og einkenni Guðs. Til dæmis staðreyndina að Heilagur Andi sé alvaldur má sjá í Sálmi 139:7-8 „Hvert get ég farið frá anda þínum og hvert flúið frá augliti þínu? Þótt ég stigi upp í himininn, þá ertu þar, þótt ég gjörði undirheima að hvílu minni, sjá, þú ert þar.“ Svo sjáum við í 1. Kór 2:10 einkenni alvisku í Heilögum anda. „En oss hefur Guð opinberað hana fyrir andann, því að andinn rannsakar allt, jafnvel djúp Guðs.“

Við vitum að Heilagur andi er persóna af því að hann er gæddur huga, tilfinningum og vilja. Heilagur andi hugsar og veit (1. Kór. 2:10). Það er unnt að hryggja Heilagan anda (Ef. 4:30). Andinn biður fyrir okkur (Róm. 8:26-27). Heilagur andi tekur ákvarðanir í samræmi við vilja Hans (1. Kór. 12:7-11). Heilagur andi er Guð, þriðja „persóna“ þrenningarinnar. Eins og Guð getur Heilagur andi sannlega starfað sem sá huggari og ráðgjafi sem Jesús lofaði að hann yrði (Jóh. 14:16,26; 15:26).

English



Til baka á heimasíðuna á íslensku

Hver er Heilagur andi?
Facebook icon Twitter icon Pinterest icon Email icon
© Copyright Got Questions Ministries